Taktu því rólega í nóvember.
En afhverju að taka því rólega og slaka á í nóvember, árstímanum þar sem jólavertíðin er í blússandi gangi?
Vegna þess að þú færð alltaf besta dílinn hjá okkur í Nova, hvort sem þú kaupir í nóvember eða hvenær sem er á árinu.
Afsláttardagar geta verið spennandi en þeir valda einnig oft óþarfa kvíða. Þetta sérstaklega á við þegar mikið er í húfi. Oft upplifa mörg pressu til að kaupa strax til að „missa ekki af tilboðinu“.
Með þjónustuloforðunum okkar færð þú hins vegar einfaldari og afslappaðri upplifun - við höfum gert okkar til að tryggja að þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af því hvort þú hafir náð besta dílnum eða ekki.
Okkar besta verð - Við tryggjum besta verðið okkar Ef verðið á nýju græjunni þinni lækkar hjá Nova innan 30 daga frá kaupum þá borgum við þér einfaldlega mismuninn.
Endurgræddu - Inneign fyrir gömlu græjuna Nova greiðir þér inneign fyrir gömlu græjuna sem þú getur notað upp í eitthvað glænýtt. Gamla tækið fer í grænt endurvinnsluferli. Þú græðir og jörðin græðir.
Skilað & skipt - 30 dagar til að skila Hjá Nova endurgreiðum við vöruna að fullu ef umbúðir eru óopnaðar og fínar. Hafi umbúðir verið opnaðar færðu samt 80% af kaupverði endurgreitt.
Aukahlutadíll - 10% aukahlutaafsláttur. Þegar þú kaupir nýjan síma og ert viðskiptavinur Nova færðu 10% afslátt af öllum aukahlutum fyrir nýju græjuna.
Nálgunin okkar snýst einnig um að efla andlega vellíðan, þar sem þú getur sleppt því stressi sem fylgir afsláttartímabilum og varið orku þinni í að einbeita þér að því sem raunverulega skiptir máli. Þannig getum við öll slakað á í nóvember og í stað þess að festast í kaupæðinu, notað tíma okkar til að njóta frekar þeirra hluta sem við eigum fyrir.
Þegar þú verslar hjá Nova getur þú verið viss um að fá mest fyrir peninginn, svo þú getur græjað jólagræjurnar áhyggjulaus í nóvember hjá Nova!