Dansgólfið

4. nóv 2024

Laggar þig í hraðara net?

Laggar þig í hraðara net?

Laggar þig í hraðara net?

Þá er WiFi 7 ráterinn frá Nova lausnin fyrir þig! Með nýrri kynslóð rátera hjá Nova geturðu loksins sagt bless við lagg og sagt hæ við hraðara, öruggara og áreiðanlegra net.

WiFi 7 er bylting í nethraða, og býður upp á allt að 4,8x meiri hraða en fyrri kynslóð, WiFi 6. Þetta þýðir mun minni biðtími og meira flæði, sem skiptir máli þegar þú ert að streyma, hlaða upp stórum skrám eða spila leiki þar sem hver millisekúnda skiptir máli.

Ertu tæknigúrú sem elskar tölvuleiki eða ertu kröfuharður notandi að vinna með stór gögn? Þá smellpassar WiFi 7 fyrir þig!

Með aukinni fjölgun nettengdra tækja á nútíma heimilum hefur eftirspurn eftir meiri hraða verið sífellt meiri og hefur tæknin svo sannarlega svarað kallinu! WiFi 7 býður upp á að hafa tvöfalt fleiri samstímanotendur en áður og innleiðir líka háþróaða tækni til að draga úr truflunum frá öðrum tækjum og netum, sem tryggir stöðugra og áreiðanlegra net.

Þar sem WiFi 7 er nýjasta nýtt í heimi tækninnar er ekki víst að öll tæki heimilisins styðji við hana en WiFi 7 netbeinar styðja við alla eldri WiFi staðla og færa því frábært net í öll tæki. Ef tækið þitt styður WiFi 7 færðu bestu mögulegu upplifun.

WiFi 7 hjá Nova er sniðin að þörfum þeirra sem vilja vinna og njóta, lagglaus!

Gleymdu hægagangi, finndu frelsið sem fylgir hraðara neti og fáðu lagglaust net með Nova WiFi 7 ráternum!

Mynd af Jón Andri Óskarsson
Jón Andri Óskarsson
Vörustjóri