Dansgólfið

6. júní 2024

FríttSund FyrirÞig á laug­ar­dags­kvöld­um í allt sumar!

FríttSund FyrirÞig á laugardagskvöldum í allt sumar!

Við hjá Nova viljum að viðskiptavinir fái alltaf mest fyrir peninginn og FyrirÞig fríðindaklúbburinn tryggir að þú fái alltaf besta dílinn og svo sannarlega MargfAllt FyrirÞig.

Þetta kjarnast allt saman í Nova appinu þar sem þú finnur alla flóruna af virðisaukandi dílum, fríðindum og upplifunum FyrirÞig eins og Klippin, 2F1 tilboðin og FríttStöff, sem er í alvörunni frítt – og nú í sumar munt þú finna FríttSund í FríttStöff öll laugardagskvöld!

Hvað er FríttSund?

Við bjóðum viðskiptavinum okkar frítt í sund í allt sumar á laugardagskvöldum, því það er nefnilega svo mikilvægt að njóta þess stundum að vera saman án síma og leyfa sér að leika og busla.

Þar að auki munum við koma fyrir spjallspjöldunum okkar í stærri og vatnsheldari útgáfu þar sem þú getur spjallað og átt innihaldsrík samtöl við þín nánustu, nú eða bara aðra fastagesti sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu.

Hvert laugardagskvöld verður frítt í tvær laugar í Reykjavík frá kl. 18 til 21 og hefjum við leikinn í Laugardalslaug og Grafarvogslaug laugardaginn 8. júní.

Það eina sem þú þarft að gera er að mæta með sundfötin, sækja FríttSund í FríttStöff í Nova appinu í afgreiðslunni, sýna starfsfólki lauganna og þú færð frítt í sund!

Það er heldur betur ekki amalegur díll.

Það er ótrúlega gaman að geta samþætt fríðindaklúbbinn okkar saman við geðræktarvegferðina okkar og það eru svo sannarlega fleiri skemmtilegar uppákomur væntanlegar frá Nova í sumar!

Mynd af Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson
Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson
Markaðsstjóri Nova