Radiant útileg­uljós & hleðslu­banki

Nite Ize Radiant RL3 PowerSwitch er endurhlaðanlegt útileguljós sem lýsir upp kvöldið hvort sem þú ert í tjaldinu, sumarbústaðnum eða garðpartýinu. Það er bjart, sterkbyggt og einfalt í notkun, og virkar einnig sem hleðslubanki fyrir símann!

Ljósið er með nokkrum birtustillingum, allt frá öflugri lýsingu yfir í kósýljós sem skapar notalega stemningu. Innbyggt USB-C tengi til að hlaða ljósið eða önnur tæki og PowerSwitch rafhlöðuhólf sem lengir notkunina með AA-rafhlöðum þegar hleðslan klárast.

  • Allt að 500 lúmen birta
  • Endurhlaðanleg rafhlaða
  • USB-C tengi til að hlaða tækin þín
  • 4 hvítar ljósstillingar og 2 hlýrri stillingar
  • Amber flicker stilling sem líkir eftir kertaljósi
  • PowerSwitch stuðningur fyrir 3 AA-rafhlöður
  • Vatnsvarið IPX4
Radiant útileguljós & hleðslubanki